Auglýsing! Mjög áhugaverðir tónleikar.

Næsta sunnudag, þann 6.  júlí kl. 17:00 verða tónleikar í Akureyrarkirkju. Stúlknakórinn Graduale Nobili mun syngja undir stjórn Jóns Stefánssonar og með þeim leikur sellóleikarinn Ásdís Arnardóttir. Graduale nobili var storfnaður árið 2000  en kórinn er skipaður  24 stúlkum  á aldrinum 17 - 24 ára sem vaxið hafa upp úr Gradualekór Langholtskirkju.Stelpurnar hafa hreppt önnur verðlaun í Evrópukeppni æskukóra í Kalundborg í Danmörku og árið 2003 hlaut kórinn tvenn gullverðlaun í alþjóðlegu kórakeppninni í Tampere í Finnlandi. Kórinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2008 sem „Bjartasta vonin“.Á efnisskrá tónleikanna á sunnudaginn eru Maríuljóð, tvö verk sem samin voru sérstaklega fyriri kórinn; In Paradisum, eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson og kafli úr Vesper, eftir Tryggva Baldvinsson, Vocalisa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og fleira. Tónleikarnir standa í klukkustund án hlés, aðgangur er ókeypis og hér með er skorað á allar kórstúlkur að mæta og hlusta, þið hafið örugglega gaman að.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stúlknakór Akureyrarkirkju

Höfundur

Stúlknakór Akureyrarkirkju
Stúlknakór Akureyrarkirkju
Stúlknakór Akureyrarkirkju er skipaður 35 stelpum á aldrinum 13-20 ára
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Spurt er

Hve oft skoðaru síðuna á viku?

Tónlistarspilari

Stúlknakór Akureyrarkirkju - Á Sprengisandi

Nýjustu myndir

  • IMG_2975
  • IMG_2972
  • IMG_2990
  • IMG_2990
  • PA010126

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband