Færsluflokkur: Tónlist
8.6.2008 | 22:02
fréttir af stúlknakórnum og fararstjórum
Var beðin um að senda kveðju frá hópnum þar sem þau höfðu ekki aðgang að tölvu.. Allt gengur vel , stelpurnar sungu tvisvar í dag og stóðu sig víst alveg eins og hetjur . Fólk var gríðarlega ánægt með flutning þeirra og þær hafa verið Eyþóri og sjálfum sér til sóma eins og alltaf. Hópurinn fór svo og borðaði á grískum veitingastað og svo verður líklega reynt að fara að sofa á skikkanlegum tíma vegna þess að á morgun er VERSLUNARFERÐ!! Já þá munu nú karlmennirnir í hópnum hafa nóg að gera, það er nefnilega hefð fyrir því í þessum ferðum að þeir beri pokana! Sem sagt allt gengur vel allir hressir. Þórdís
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.6.2008 | 06:23
Símanúmer kórsins er 697-6280
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.6.2008 | 20:11
Rútan o.fl.
stelpur, þið getið tekið með í rútuna kodda og teppi ef þið viljið. Eggert bílstjóri geymir þetta fyrir ykkur og mun koma öllu á þá rútu sem flytur okkur heim aftur.
Við munum stoppa á N1 bensínstöð í Hafnarfirði á leiðinni til Keflavíkur til að taka upp þrjá farþega. N1, Lækjargötu 46, á horni Reykjanesbrautar og Lækjargötu, stendur við lítið hringtorg, Sólvangur og Setbergsskóli eru þarna rétt hjá. Vona að þið áttið ykkur á þessu:)
Munir svo að taka með 2-3 handklæði, engar sængur eða kodda, VEGABRÉFIN og nóturnar!
Sjáumst kát og hress í fyrramálið kl. 07:30
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.6.2008 | 20:10
Handklæði og sængurföt
Á gististöðunum munum við fá leigð sængurföt þannig að það þarf EKKI að taka með sængurföt. Ég er ekki viss hvort það fylgja handklæði herbergjunum. Á fyrsta gististað er hægt að fá leigð handklæði og mér finnst líklegt að þau fylgi herbergjunum þar sem við gistum í Münster í lok ferðar. En endilega takið með 2 handklæði til að taka með í sundlaugargarðana. Gott húsráð er að taka með gömlu ljótu handklæðin og þá má bara henda þeim í lok ferðar
Gangi ykkur vel að pakka, kveðja, Rósa
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2008 | 16:28
Ljósrit af vegabréfum
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2008 | 09:29
Veðrið í Þýskalandi
Kíkið á þessa veður-síðu http://wetter.rtl.de/deutschland/dt.php
Ef þið smellið á svæðið í kringum Köln þá fáið þið upp þá staði sem við munum dvelja á í ferðinni. Við byrjum í Bochum rétt hjá Essen, förum þaðan til Bielefeld sem þið sjáið þarna líka og svo endum við í Münster sem er eitthvað vestan við Bielefeld(minnir mig....) Það verður sem sagt sól og 25 stiga hiti um helgina og svo er bara að fylgjast með framhaldinu Gerum samt ráð fyrir rigningu... og tökum með regnhlífarnar.
bestu kveðjur, Rósa
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 21:03
kemst ekki:/
en kem á fimmdudaginn

Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.6.2008 | 11:24
Kórkjólar og bolir
Kæru stúlkur.
Hér koma þvottaleiðbeiningarnar aftur og meðferð kjóla og bola. Set þetta aftur inn þar sem að það eru einungis 4 dagar í Þýskaland!
Mig langar til að ítreka við ykkur að hugsa vel um kjólana ykkar og bolina. Það má þvo kjólana á 30° ca.600 snúninga vindingu og bolina á 40° fulla vindingu. Kjólana má síðan pressa en passa að nota alltaf stykki til að pressa með annars geta komið leiðinlegir glansblettir á kjólana.Það er ykkur til sóma að líta vel og snyrtilega út á öllum tónleikum ekki satt sérstaklega þar sem þið eruð jú flottastar. Munið bara að huga tímanlega að þessu. Þórdís lætur svo vita þegar bolirnir eru komnir fyrir þær ykkar sem vantar þá, það er alveg nauðsynlegt að hafa minnst 2 boli með í ferðina það ætti að duga. Best er að pakka kjólum og bolum niður í ferðatöskur með því að brjóta þá til helminga og rúlla þeim síðan upp. Svo vona ég að þessar uppl. komi að gagni með kærri
kv. Inga Salóme
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2008 | 17:30
Geggjað!
Hrikalega er ég stoltur af ykkur!
Stúlknakór Akureyrarkirkju er æðislegur!
Eyþór
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.5.2008 | 16:57
Tónleikar á morgun
kl 16, mæting kl. 13.30. Þið fáið góðan tíma eftir kl. 15 til að skipta um föt.
Hlakka til að tónleika við ykkur elskurnar mínar.
Eyþór
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Stúlknakór Akureyrarkirkju
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
Spurt er
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar