Mikilvægt

Það er mikilvægt að mæta næsta þriðjudag ef þið mögulega getið því þá ætla nefndirnar að funda. Það er ýmislegt sem þarf að tala um og skipuleggja.  Ef þið vitið ekki í hvaða nefnd þið eruð þá er listi hérna á síðunni.

Og á fimmtudaginn, 10. janúar munum við byrja að æfa nýtt verk svo að það yrði líka frábært ef þið sæuð ykkur fært að mæta þar.

Munið, mæting er mikilvæg! LoL

Bergrún.

Æfing á morgun!

Hæ stelpur mínar!

Fyrsta æfingin er á morgun, jibbí!

Má ég biðja einhverjar ykkar um að sjá um barnakórsæfingar á fimmtudaginn?  Þær eru kl. 3 og 4.  Það er nóg að láta krakkana syngja 2-3 lög að eigin vali úr sálmabók barnanna og svo fara með þau í einhverja leiki.

Væri rosalega þakklátur

Eyþór


Vangaveltur

Ég er örugglega ekki sú eina sem hefur velt því fyrir sér hvort að það sé nokkuð æfing á morgun? Byrjar þetta ekki bara í næstu viku, þriðjudaginn, sharp?

 Kv. Óvissi formaðurinn/Bergrún.


Bréf til foreldra

Nokkrum dögum fyrir jól sendi ég út bréf vegna staðfestingar á Þýskalandsferðinni á netföng foreldra.  Mig langar til að biðja ykkur, kæru stúlkur, um að biðja foreldra ykkar um að tékka á póstinum sínum og senda mér til baka svar um að þeir hafi móttekið bréfið.  Það myndi spara mér ein 15 símtöl til að ganga úr skugga um að bréfið hafi skilað sér.  Við þurfum að fá staðfestingu á því hverjar ætla með í ferðina í síðasta lagi á fimmtudagsæfingunni 10. janúar.

bestu kveðjur,  Rósa


Tapað-fundið

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og stelpur, takk fyrir sönginn í Pennanum á Þorláksmessukvöld Whistling

Einhver ykkar hefur líklegast misst jólasveinahúfuna sína því Eyþór hirti eina slíka uppúr gólfinu eftir sönginn.   Húfan er vel geymd heima hjá Helen ef einhver vill nálgast hana. 

bestu kveðjur,  Rósa kórmamma


Gleðileg jól

Gleðileg jól elskurnar mínar

Takk fyrir skemmtilegt samstarf í haust.  Hlakka til að takast á við ný og skemmtileg verkefni á vorönninni með ykkur.   

Eyþór 


hæhæ

ætla bara að láta vita að ég kem ekki niður í kikju kl. 8 heldur hitti ykkur bara úti í húsasmiðju og fer svo með ykkur þanað:)

Elfur Sunna


Skutl á Þorláksmessu.

Annað kvöld, á Þorláksmessu, 23. desember mun hann Eggert, pabbi Hönnu Dísu, skutla okkur.

Við ætlum semsagt að hittast klukkan 8 hjá kirkjunni og förum með rútu í Húsasmiðjuna og þaðan í Pennann.

Mæta sem flestar og megið láta þetta ganga.
Bergrún (& Eyþór)

P.S stelpur BROOOOOSA! það er fólk sem er í rosa jólastressi við skulum róa þau niður með fallegum söng og B-R-O-S-A það kemur fólki í gott skap ekki gleyma því (kv hafdis)


Bykó, Húsó og Pennó

Nýjar upplýsingar:

Mæting kl. 15 í Byko á morgun

Mæting kl. 20.30 í Húsasmiðjuna á Þorláksmessu

Mæting kl. 21.30 í Pennann á Þorláksmessu

Geta foreldrar hjálpað okkur á milli Húsamiðjunnar og Pennans (Bókvals)

Eyþór


:(

heirðu því miður verð ég að vinna í dag og kemmst ekki í búðarsöginn en ég verð með laugardag og sunnudag
kv margrét h

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stúlknakór Akureyrarkirkju

Höfundur

Stúlknakór Akureyrarkirkju
Stúlknakór Akureyrarkirkju
Stúlknakór Akureyrarkirkju er skipaður 35 stelpum á aldrinum 13-20 ára
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Spurt er

Hve oft skoðaru síðuna á viku?

Tónlistarspilari

Stúlknakór Akureyrarkirkju - Á Sprengisandi

Nýjustu myndir

  • IMG_2975
  • IMG_2972
  • IMG_2990
  • IMG_2990
  • PA010126

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband